The Arctic Open 2011


Miðnæturgolf í miðnætursól

ao_forsidumynd_400Það er sem draumur hafi ræst, segja kylfingar sem tekið hafa þátt í Arctic Open golfmótinu á Akureyri. Enda er það draumi líkast og einstök upplifun að spila golf í blóðrauðu sólarlagi um miðnæturbil svo nærri heimskautsbaugi. Stemningin í kringum mótið er engu lík og þátttakendur eiga ógleymanlegar stundir í góðra vina hópi.

Arctic Open er alþjóðlegt golfmót sem hefur fest sig í sessi og verður nú haldið dagana 28.-30. júní. Það var fyrst árið 1986 að Arctic Open mótið var haldið og var þá einungis keppt í einum flokki, þ.e.a.s. með forgjöf.

Frá árinu 1987 hefur verið keppt í tveimur flokkum, með og án forgjafar, og það ár var atvinnumönnum í fyrsta sinn boðin þátttaka og mótið um leið gert að alþjóðlegu golfmóti. Árið 2002 var bætt við verðlaunum fyrir besta árangur í kvenna- og öldungaflokki án forgjafar.

Kylfingar sem hafa notið miðnætursólar á Arctic Open í gegnum tíðina hafa komið víðsvegar af landinu og frá öllum heimshornum. Þeir ljúka allir sem einn lofsorði á skipulag mótsins sem er í raun fjögurra daga golfhátíð, 36 holu golf þar sem leikið er eftir Stableford punktakerfi. Sjálfir keppnisdagarnir eru tveir og spilaðar 18 holur hvorn þeirra. Fyrri daginn er raðað í ráshópa af handahófi og tekið tillit til óska keppenda en síðari daginn er að mestu leyti raðað eftir skori.

Mótið hefst á fimmtudegi með skráningu keppenda og opnunarhátíð þar sem boðið er upp á hlaðborð með norðlenskum veitingum. Kl. 16 á fimmtudag eru fyrstu kylfingarnir ræstir út og eru leiknar 18 holur fram á rauða nótt. Á föstudag eru leiknar aðrar 18 holur. Á laugardagskvöld er loks slegið upp veislu í lokahófi þar sem verðlaun eru afhent og boðið upp á skemmtiatriði

Arctic Open er ógleymanleg upplifun hverjum þeim sem skráir sig til leiks en þátttakendum gefst jafnframt kærkomið tækifæri til að upplifa allar lystisemdir Akureyrar sem eru jú margrómaðar! Frekari upplýsingar um menningu, afþreyingu og margt fleira er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar www.akureyri.is

Til að fá nánari upplýsingar, hafið samband við:
Golfklúbbur Akureyrar
Jaðri
600 Akureyri
ISími 462 2974

E-mail: gagolf@gagolf.is
http://www.gagolf.is

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning