Keppnisfyrirkomulag
Arctic Open er 36 holu golfleikur í einum opnum flokki þar sem leikið er eftir Stableford punktakerfi. Spilaðar eru 18 holur hvorn keppnisdag. Fyrri daginn er raðað í ráshópa af handahófi en síðari daginn eftir skori. Hæsta skor fyrst og svo koll af kolli.
Keppt er í opnum flokki með og án forgjafar . Einnig eru veitt verðlaun fyrir besta skor kvenna og besta skor í öldungaflokki karla.
Verði keppendur jafnir í efstu sætum eftir 36 holur skal spilaður bráðabani á 18. holu þar til úrslit fást.
Samhliða leik er spiluð liðakeppni þar sem fjórir eru saman í liði, valið er í liðin af handahófi. Þrjú bestu skorin gilda og eru veitt verðlaun fyrir fyrsta sætið.
Á skorkort skal skrá höggafjölda (ekki punkta) á hverja holu, ef ljóst er að keppandi fái ekki punkt á holuna skal taka upp boltann og setja “x” við holuna.
Staðarreglur
1. Vallarmörk eru girðingin umhverfis völlinn og hvítar stikur. Þegar 10. braut er leikin merkja hvítar stikur vinstra megin brautar vallarmörk, annars eru þær óhreyfanleg hindrun. Æfingasvæði til hægri við 7. braut er utan vallar (regla 24-2)
2. Steinar og skeljar í glompum eru hreyfanleg hindrun. (regla 24-1).
3. Öll mannvirki eru hluti vallar. Undantekningar eru vegir, vegkantar, auglýsingaskilti, sólpallur, vatnskranar, stefnuhælar, fjarlægðarmerkingar og blómabeð við 18. braut sem eru óhreyfanlegar hindranir. (regla 24-2)
4. Hreyfiregla til bráðabirgða:
Færa má um púttershaus á flötum, þó aldrei nær holu. Bolti sem hreyfður er samkvæmt reglu þessari er bolti í leik og hann má ekki hreyfa aftur samkvæmt þessari reglu. Merkja skal upprunalega legu boltans. Tilkynna skal ritara um uppstillinguna. (regla 20-3)
Að öðru leyti skal leikið samkvæmt reglum St. Andrews.
Brot á staðarreglum: TVÖ VÍTISHÖGG
Merkingar á velli:
Bláir hælar: Grund í aðgerð
Gulir hælar: Vatnstorfæra
Rauðir hælar: Hliðarvatnstorfæra
Hvítir hælar: Utan vallar
Vallarvísir er fáanlegur í golfskála.
LAGIÐ BOLTAFÖR Á FLÖTUM
SETJIÐ TORFUSNEPLA Í FÖR
TAKIÐ EKKI ÆFINGASVEIFLU Á TEIGUM
Mótið telst til forgjafar í öllum forgjafarflokkum.



