GSÍ var stofnað 14. ágúst 1942 af GR, GA & GV. GSÍ var fyrsta sérsambandið innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. 65 klúbbar eru aðilar að GSÍ. Meðlimir þeirra klúbba sem aðild hafa að sambandinu voru 15.785 þann 1. júlí 2010 s.l. og hafa þeir aldrei verið fleiri.









