Fréttir

35 þúsund Íslendingar spiluðu golf á ferð um Ísland á síðasta ári

Í gær  voru kynntar niðurstöður úr könnun Ferðamálastofu um ferðalög Íslendinga um eigið land árið 2009.

Samtökin Golf Iceland voru eins og kunnugt er stofnuð í þeim tilgangi að  tengja betur saman en fyrr golf og ferðaþjónustu. Lögð hefur verið áhersla á að kynna golf sem eina tegund afþreyingar fyrir erlenda og innlenda ferðamenn. www.golficeland.org

Í gær  voru kynntar niðurstöður úr könnun Ferðamálastofu um ferðalög Íslendinga um eigið land árið 2009.Samkvæmt niðurstöðunum þá ferðuðust um 90% Íslendinga um landið á árinu. Mikill meirihluti þeirra sem ferðaðist fóru í fleiri en 2 ferðir á árinu.Spurt var um fjölmörg atriði og m.a.: Hvaða afþreyingu greiddir þú fyrir á ferð þinni um Ísland?

Ekki kemur á óvart að sund er þar efst á blaði enda mest sótta afþreying um allt land. Golf er í fimmta sæti þegar spurt er um afþreyingu sem greitt er fyrir, en 12,4% Íslendinga á ferðalagi árið 2009 segjast hafa greitt fyrir golf í ferðinni.

Sund                          65,9 %

Söfn                           32,9 %

Veiði                           19 %

Leikhús                      18,0 %

Golf                            12,4 %

Bátsferð                     10,2 %

Hestaferð                   2,9%

Flúðasigling              2,3 %

Hvalaskoðun            2,0 %

Ef þetta er reiknað hlutfallslega þá  má gera því skóna að um 35.000 Íslendingar hafi keypt sér golfhring á ferð um Ísland árið 2009 og meirihlutinn fleiri en einn.

Ljóst er því að ferðamenn skipta verulegu máli í tekjuöflun golfklúbba um allt land og skila þeim tugmilljóna tekjum, sem eðlilega er hægt að auka enn með frekari kynningu á þessari afþreyingu, sem augljóslega höfðar til fólks á ferðalögum. 



Vallarvísir

Mynd augnabliksins

mitzubishi_2008_005.jpg

Könnun

Hvernig líkar ykkur tillögur að nýju deiliskipulagi að Jaðri








Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Speki

Árið 1875 var opinberlega staðfest að fullkominn golfvöllur skildi vera 18 holur.

 

Tillaga að Deiliskipulagi golfvallarsvæðis að Jaðri

Tillaga að deiliskipulagi 2010

Smelltu á myndina til að ná í PDF skjal með tillögu að nýja deiliskipulaginu

Vallarframkvæmdir

 

 video

Umgengni og leikhraði

  • Gerið við boltaför á flötum/kylfuför á brautum

  • Halda skal uppi góðum leikhraða - 4 í holli/4.40 klst hámark

  • Snyrtilegur klæðnaður - ekki gallafatnaður

 

Arctic Open

Arctic open logo

Arctic Open 2011

Haldið dagana 23. - 25. júní

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning