Golfklúbbur Akureyrar er stofnaður 19. ágúst 1935.
Hinn 19 ágúst 1935 hittust 27 menn í Samkomuhúsinu Skjaldborg á Akureyri, í þeim tilgangi að stofna golfklúbb á Akureyri. Okkur sem í dag njótum góðs af framsýni þeirra og dugnaði verður óneitanlega hugsað til þeirra og það er ekki annað hægt en að fyllast aðdáun á baráttunni fyrir því að hefja golfíþróttina til vegs hér í bænum. Gunnar Schram var kosinn fyrsti formaður Golfklúbbs Akureyrar og var fyrsti golfvöllurinn 6 holur á Gleráreyrum.







