Leiðir að markmiðum

Einstaklingsbundin markmið

Allir einstaklingar sem stefna að þátttöku í sveitakeppni fyrir hönd GA skulu skila til kennara markmiðum fyrir hvert keppnistímabil á þar til gerðu eyðublaði. Stuðningur GA við einstaklinga er háður því að þessu sé fullnægt.

Sveitakeppni

Undirbúningur vegna sveitakeppni skal hafinn tímanlega ár hvert og liðstjórar skipaðir fyrir sumarbyrjun sé þess kostur. Liðstjóri og kennari móta viðmið við val á sveitum. Eftir að val liggur fyrir skulu sveitir undirbúa sig fyrir keppni á sameiginlegum æfingum.

Hlutverk GA og afreksnefndar

Stjórn GA í samráði við afreksnefnd leggur áherslu á og veitir stuðning til að eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt:

Þjálfun, aðstaða og fræðsla

  • Æfingatími undir leiðsögn kennara sé ávallt fullnægjandi
  • Æfingaaðstaða sé fullnægjandi og þróuð í takt við framfarir sem verða á hverjum tíma
  • Aðstaða til líkamsræktar undir leiðsögn þjálfara verði í boði
  • Fyrirlestrar og annar fróðleikur um markmiðasetningu, mataræði, reglur og siðareglur skulu vera í boði reglulega
  • Gerð verði krafa um að allir keppendur í sveitakeppni karla og kvenna afli sér dómararéttinda

Fjárhagslegur stuðningur

  • Fjárhagsleg aðstoð vegna keppni einstaklinga miðist við að hjálpa einstaklingum að ná árangri
  • Fjárhagsrammi vegna sveitakeppni sem og búningamál séu í þannig farvegi að keppnisfólk GA geti komið fram með stolti fyrir klúbbinn sinn.

Vallarvísir

Mynd augnabliksins

12.10.07_006.jpg

Könnun

Hvernig þótti þér viðhorfskönnun GA








Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Speki

GSÍ var stofnað 14. ágúst 1942 af GR, GA & GV. GSÍ var fyrsta sérsambandið innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. 65 klúbbar eru aðilar að GSÍ. Meðlimir þeirra klúbba sem aðild hafa að sambandinu voru 15.785 þann 1. júlí 2010 s.l. og hafa þeir aldrei verið fleiri.

 

Tillaga að Deiliskipulagi golfvallarsvæðis að Jaðri

Tillaga að deiliskipulagi 2010

Smelltu á myndina til að ná í PDF skjal með tillögu að nýja deiliskipulaginu

Vallarframkvæmdir

 

 video

Umgengni og leikhraði

  • Gerið við boltaför á flötum/kylfuför á brautum

  • Halda skal uppi góðum leikhraða - 4 í holli/4.40 klst hámark

  • Snyrtilegur klæðnaður - ekki gallafatnaður

 

Arctic Open

Arctic open logo

Arctic Open 2012

Haldið dagana 28. - 30. júní

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning