Lög Golfklúbbs Akureyrar
1. grein
Félagið heitir Golfklúbbur Akureyrar. Heimilisfang klúbbsins er að Jaðri, Akureyri. Klúbburinn er aðili að Golfsambandi Íslands (G.S.Í.). Tilgangur og markmið klúbbsins er að glæða og viðhalda áhuga á golfiþróttinni. Klúbburinn rekur golfvöll og golfskála og stendur fyrir golfæfingum, golfinótum og annari félagsstarfsemi sem tengist iþróttinni.
2. grein
Við golfleik skal fara eftir St. Andrew's golfreglum, eins og þær eru á hverjum tíma. Sérreglur setur stjórnin eftir því sem henni þurfa þykir. Sérhver félagi er skyldur að fara eftir þeim reglum sem stjórnin setur um leikinn og umferð og umgengni á golfvellinum og í klúbbhúsinu. Stjórnin skal sjá til þess að leikreglur, umgengnisreglur og siðareglur liggi að jafnaði frammi í klúbbhúsinu. Breytingar sem verða kunna á þessum lögum skal hún auglýsa þar rækilega.
3.grein
Um inngöngu í klúbbinn skal sækja skriflega. Inntaka nýrra félaga er háð samþykki stjómar, sem getur frestað inntöku til félagsfundar. Skilyrði til inntöku í klúbbinn er að umsækjandi hafi fengið leiðsögn kennara eða fullgilds klúbbfélaga og hafi sótt námskeið eða fyrirlestur um siðareglur, leikreglur og aðrar þær reglur er félagar lúta. Erlendir ríkisborgarar geta einnig sótt um inngöngu í klúbbinn, en um aðild þeirra gilda sérstakar reglur sbr. 4.gr. Inntökugjald er ákveðið á aðalfundi hverju sinni.
4. grein
Aðalfundur ákveður árgjald næsta starfsárs að fenginni tillögu stjórnar. Erlendir ríkisborgarar búsettir hér um stundarsakir greiði sömu árgjöld. Erlendir ríkisborgarar, sem ekki eru búsettir hér á landi greiða árgjald eða ævigjald samkvæmt ákvörðun stjómar hverju sinni. Erlendir ríkisborgarar bera sömu réttindi og skyldur sem aðrir meðlimir klúbbsins fyrir utan að þeir hafa ekki atkvæðisrétt á aðalfundi eða almennum félagsfundum. Þá eiga þeir ekki aðild að G.S.Í. eða Í.S.Í.Farandverðlaun sem útlendingar kunna að vinna skulu geymd í klúbbhúsinu. Stjórn ákveður vallargjald/flatargjald utanfélagsmanna. Stjórnin getur á aðalfundi borið fram og leitað samþykkis tillagna um sérstök aukaframlög klúbbfélaga. ,
5. grein
Gjalddagi árgjalda er 10 febrúar en eindagi 1 maí. Stjórninni er heimilt að veita greiðslufrest með álagi til 1. júní. Þeir sem ekki hafa greitt árgjald fyrir eindaga hafa fyrirgert rétti sínum sem félagar klúbbbsins og fá m.a. ekki að taka þátt í keppni fyrr en gjaldið hefur verið greitt eða samið um greiðslu þess. Úrsögn er bundin við áramót, enda berist hún skriflega til ritara fyrir lok desembermanaðar.
6. grein
Stjón klúbbsins skipa 5 menn: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjónandi. Þeir skulu kosnir skriflega á aðalfundi. Formaður skal kosinnsérstaklega til eins árs í senn. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, þannig að þrir eru kosnir annað hvert ár.Á aðalfundi skal einnig kjósa tvo varamenn í stjórn til eins árs. Gangi einhver úr stjórn áður en kjörtíma hans lýkur skal 1. varamaður taka sæti hans til næsta aðalfandar og þannig koll af kolli. Boði aðalmenn í stjórn forföll þegar stjórnarfundur skal afgreiða mikilsverð mál skulu varamenn kallaðir til að taka sæti þeirra. Varamönnum skal að jafnaði heimil seta á stjórnarfundi með málfrelsi en ekki atkvæðisrétti. Stjórnarmenn má endurskjósa gefi þeir kost á sér.Tveimur vikum fyrir aðalfund skal stjórn skípa 3ja manna kjörnefnd. Einn nefndarmanna skal vera eða hafa verið í stjórn eða varastjórn. Kjörnefnd skal leita eftir framboðum til embætta sem kjósa skal í og sjá til þess að a.m.k. einn frambjóðandi sé til hvers þeirra. Stjórnin getur jafnframt falið kjörnefnd að leita eftir framboðum eða tillögum um skipan nefnda, sbr. 8. grein.
7. grein
Stjórnin ákveður sjálf starfstilhögun sína (sjá þó 8. grein). Hún getur ráðið sér launaða aðstoð og fær bein útgjöld greidd úr félagssjóði en vinnur sjálf ókeypis. Hún kemur fram fyrir klúbbsins hönd í fullu umboði hans í öllum málum sem hann varða. Þó þarf samþykki félagsfundar til stórra ákvarðana sem hafa mikil fjárútlát í för með sér. Hún getur tilnefnt heiðursfélaga ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi, enda leiti hún fundarsamþykkis á því.Stjórnin skal rækta samband við klúbbfélaga og kynna þeim mikilsverð mál er varða starfsemi klúbbsins á félagsfundum eða opnum stjórnarfundum.
8. grein
Á vegum stjórnarinnar skulu að jafnaði starfa þessar nefndir: 1) Kappleikjanefnd 2) Vallanefnd 3) Forgjafarnenfd 4) Aganefnd 5) Skemmtinefnd 6) Fjáröflunarnefnd 7) Unglinganefnd 8) Nýliðanefnd. Fjórar fyrsttöldu nefndirnar starfa skv. Reglum G.S.I. en hinar fjórar sem hér segir:Skemmtinefnd sér um fræðslu og skemmtisamkomur, meðal annars að vetrarlagi, kynningarsamkomur svo og skemmtanir í tengslum við meiri háttar kappleiki. Fjáröflunarnefnd leitast við að afla klúbbnum fjár til styrktar starfseminni, til dæmis með auglýsingum sem geta verið á skorkortum, árskortum, teigmerkjum og i eða á klúbbhúsinu. Í samvinnu við skemmtinefnd getur hún staðið fyrir veitingasölu á kynningarsamkomum o.fl.Unglinganefnd annast unglingastarf ínnan klúbbsins. Hún aðstoðar unglinga í leik og keppni, hvetur þá til æfinga og fær þeim þjálfara eða tilsögn eftir því sem kostur er. Auk þess er hún unglingum innan handar í unglingakeppni.Nýliðanefnd er byrjendum í íþróttinni til aðstoðar. Hún fær þeim kennara eða tilsagnarmann í upphafi og sér til þess að þeir verði færir um að leika á vellinum á eigin spýtur án þess að valda skaða eða vandræðum. Hún kynnir nýliðum siðareglur og leikreglur og hefur umsagnarskyldu gagnvart stjórninni um inntöku nýrra félaga. Í hverri þessara nefnda skulu vera 3-5 menn, tilnefndir eða kosnir á aðalfundi.
9. grein
Aðalfundur er æðsta úrskurðarvald í öllum málefnum klúbbsins. Hann skal halda á Akureyri í nóvember ár hvert. Á öðrum tímum ársins getur stjórnin boðað til almennsfélagsfundar ef henni þykir henta eða 40 félagar æskja þess skriflega með rökstuðningi. Slíkan fund skal halda innan þríggja vikna frá móttöku slíkrar beiðni.Aðalfund og aðra félagsfundi skal auglýsameð viku fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá. Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi og skal tillögum til lagabreytinga eða breytingar á starfstílhögun skilað til stjórnar eigi síðar en 1. október.Nái tillaga til lagabreytingar samþykki 2/3 (tveggja þriðju hluta) greiddra atkvæða fær hún gildi.
10. grein
Reikningsár klúbbsins er frá 1. nóvember til 31. október. Endurskoðaðir reikningar klúbbsins skulu lagðir fyrir aðalfund til samþykktar.
11. grein
Þessi eru störf reglulegs aðalfundar:
1) Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
2) Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
3) Umræður og atkvæðagreiðsla um tillögur samkvæmt 9 grein
4) Kosning stjórnar og varamanna í stjóm
5) Kosning og/eða tilnefning í aðrar nefndir, sbr. 8 grein
6) Kosnir tveir endurskoðendur og einn til vara
7) Ákvörðun árgjalds skv. 4 grein
8) Önnur mál
12. grein
Aðalfundur er löglegur og ályktunarhæfur um öll málefni klúbbsins sé löglega til hans boðað.Afl atkvæða ræður úrslitum á fundum. Atkvæðisrétt hafa þeir félagar sem náð hafa 16 ára aldri. 2/3 hluta atkvæða þarf til að samþykkja breytingar á lögumAðalfundur skal kjósa fundarstjóra og bókara eftir tillögum stjórnar. Í fundarlok skal lesa upp fundargerð og bera upp til samþykktar. Séu fundargerðir þannig samþykktar og undirritaðar af fundarstjóra og bókara auk viðstaddra stjórnarmanna skoðast þær rétt sönnunargögn um ákvarðanir fundarins.
13. grein
Sérstakur fundur þarf að ákveða hvort klúbburinn hætti starfi. Til að þær ákvarðanir teljist lögmætar þurfa 2/3 hlutar félaga að vera á fundi og 2/3 þeirra að samþykkja tillögu þess efnis. Sé þátttaka ekki næg má boða til nýs fundar innan þriggja vikna og er hann ályktunarhæfur um þetta mál sé hann, löglega boðaður enda þótt fyrrgreindri fundarþátttöku verði þá ekki náð.
14. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Akureyri 1996








