Nýliðnefnd 2012 skipa þau:
Formaður: Guðlaug María Óskarsdóttir gulla@ejs.is Eiður Stefánsson eidur@fvsa.is Sigurður Samúelsson sigurdur@nordlenska.is Jóhann Ingi Pálsson harkar@internet.is Karl Guðmundsson karlg@akureyri.isAllir geta lagt stund á golf. Konur karlar, ungir sem aldnir. Eftir að forgjafarkerfið var tekið upp geta allir keppt sín á milli, nýliðinn getur unnið meistarann. Einnig er golfið frábær fjölskylduíþrótt.
Hagnýtar upplýsingar:Heimasíða Golfkúbbs Akureyrar er www.gagolf.is þar er að finna upplýsingar um það sem er á döfinni hjá klúbbnum, mótaskrá, rástímaskráning, upplýsingar um vallargjöld, tenglar, myndir og fleira skemmtilegt. Ennfremur heldur klúbburinn úti síðu á ensku og íslensku um Arctic Open, www.arcticopen.is Svo má benda á síðu sem heldur utan um alla 18 holu velli á landinu www.golficeland.org
Skrifstofa og afgreiðsla í klúbbhúsi er opin virka daga frá kl. 8 – 22 og frá kl. 8 – 20 um helgar yfir sumartímann.Formaður Golfklúbbs Akureyrar er Halldór Rafnsson, framkvæmdastjóri er Halla Sif Svavarsdóttir, halla@gagolf.is. Starfsmenn á skrifstofu eru Jón Viðar Þorvaldsson, Samúel Gunnarsson og Stefanía Kristín Valgeirsdóttir. Golfkennari klúbbsins er Ólafur Auðunn Gylfason oligolf@simnet.is gsm 844-9001.
VeitingasalaVeitingasala er í klúbbhúsinu, rekin af Vídalín veitingum www.vidalin.is opin alla virka daga frá 9-22 og um helgar frá kl. 8 – 20 og/eða eftir mótshaldi.
Inniaðstaða: Klúbburinn er með inniaðstöðu í Íþróttahöllinni. Þar er besta aðstaða til æfinga að slá í net og vippa. Einnig er þar 18 holu púttvöllur og golfhermir. Opið er alla daga allan daginn yfir vetrartímann. Lokað yfir sumartímann.
ÆfingasvæðiðÆfingasvæðið er vestan við klúbbhúsið og þar er hægt að kaupa æfingabolta með 100 kr. mynt. Fyrir 100 kr. fást 15 boltar. Við klúbbhúsið er nýr púttvöllur og vippsvæði og kostar ekkert að æfa sig þar. Ofan við 7. braut, aðgengi frá æfingasvæðinu, eru nokkrar holur þar sem hægt er að æfa sig.
Golfreglur, staðarreglur og siðareglur. Við bendum nýliðum á að kynna sér golfreglur, staðarreglur og siðareglur. Handbók um Golfreglur er hægt að fá á skrifstofunni, staðarreglur klúbbsins eru á upplýsingatöflu í klúbbhúsinu. Nýliðum er bent á að láta setja netfang sitt á póstlista klúbbsins.Upplýsingar frá nýliðanefnd er að finna á heimasíðu GA, undir Golfklúbbur Akureyrar, nefndir.Reglunámskeið er haldið fyrir nýliða í klúbbnum ár hvert.
Nýliðaspil, Nýliðakvöldin eru 3-4 á sumri, þá spila saman vanur og óvanur. Þessi kvöld verða á þriðjudögum í júní og hefjast klukkan 19:30. Nýliðakvöldin verða auglýst í klúbbhúsinu og á heimasiðu klúbbsins. Nýliðakvöldin eru ætluð öllum nýliðum, kylfingar þurfa ekki að vera í klúbbnum en hafa verið og/eða eru á námskeiði hjá klúbbnum.. Á hverju vori er haldið Háforgjafarmót – vanur og óvanur þar sem leika saman kylfingur með lága forgjöf og kylfingur með fulla forgjöf, sjá mótaskrá. Á hverju ári er svo haldið 9 holu mót fyrir óvana kylfinga (á haustin), forgjöf 36, sem er auglýst sérstaklega.
Forgjöf, Til þess að fá forgjöf verður leikmaður að skila inn 4 x 9 holu skorkortum til forgjafarnefndar (skrifstofu) af viðurkenndum velli. Fyllið kortið út skýrt og greinilega með nafni kennitölu, dagsetningu og af hvaða teig var spilað.
Hámark EGA grunnforgjafar skal vera 36 fyrir karla og 36 fyrir konur. Leikmaður ber ábyrgð á sinni forgjöf og getur fært spilaða hringi inn á www.golf.is – Starfsfólk skrifstofu leiðbeinir ykkur með það.
Stableford punktar Stableford punktar eru veittir á eftirfarandi hátt miðað við nettóskor á hverri holu, þ.e. brúttóskor leikmanns að frádreginni forgjöf á hverri holu fyrir sig.
| Nettóskor á holu | punktar | Heiti | Heiti | |
| 2 högg yfir pari | 0 | Tvöfaldur Skolli | ||
| 1 högg yfir pari | 1 | Skolli | Bogey | |
| Par | 2 | Par | Par | |
| 1 högg undir pari | 3 | Fugl | Birdie | |
| 2 högg undir pari | 4 | Örn | Eagle | |
| 3 högg undir pari | 5 | Albatross | Albatross | |
Rástímar eru bókaðir á netinu en starfsfólk skrifstofu aðstoðar við það í byrjun með því að stofna aðgang fyrir kylfinginn á www.golf.is
- tveir dagar eru opnir í senn. Einnig er hægt að bóka rástíma á skrifstofu í síma 462 2974 og á www.gagolf.is.
Kvennanefnd er starfandi innan GA. Mánaðarlega yfir sumarið er kvennaspil þar sem vön og óvön spila saman og
upplagt er fyrir konur að mæta til að kynnast konum í klúbbnum.
Kvennaspilið er á miðvikudagskvöldum, júní, júlí og ágúst og hugsað sem nýliðaspil fyrir konur.
Þau eru auglýst í klúbbhúsinu og einnig er sendur tölvupóstur.
Kvennanefndin sér um hatta- og pilsamótið sem er árviss viðburður og haldið föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi.
Kvennanefndin skipuleggur einnig árlega golfferð fyrir konur.
Afsláttur á velli hér á norðurlandiFélagar í GA fá 30% afslátt af vallargjaldi á Húsavík, Lundsvelli, Dalvík,
Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkrók. Sýna þarf félagskortið frá GA á þessum völlum. Klæðnaður: Gerðar eru kröfur um snyrtilegan klæðnað, ekki má leika í gallafatnaði.








