Reglur við val á keppnissveitum

Almenn atriði

Við val á keppnissveitum GA skal ganga út frá eftirfarandi:
Árangur í fyrirframákveðnum mótum skal ráða vali í helming sæta.
Val í önnur sæti er í höndum liðsstjóra, þar sem liðstjóri getur t.d. tekið mið af árangri í keppnum, framförum yfir tímabilið og ástundun við æfingar. Ekki skal taka tillit til árangurs í æfingahringjum eða hringjum sem spilaðir eru til forgjafar utan reglubundinna móta.
 
Almenn skilyrði

Aðeins þeir einstaklingar sem uppfylla neðangreind skilyrði koma til grein í keppnissveit GA
Fullgildir meðlimir í GA (árgjald greitt að fullu og að öðru leyti skuldlausir við GA)
Meðlimir í afrekshópi GA og hafa skilað til afreksnefndar útfylltu eyðublaði með markmiðasetningu sinni fyrir 15. maí ár hvert.
 
Mót til viðmiðunar við val á keppnissveitum GA

  • Meistaramót GA
  • Opin mót á Norðurlandi - besti árangur á einu eftirtalinna móta (Opna Sauðárkróksmótið, Opna Húsavíkurmótið, Norðurlandsmótið)
  • KB Bankamótaröðin - besti árangur á þremur mótum (Íslandsmót í höggleik og holukeppni meðtalin) 

Útreikningur punkta

Útreikningur punkta á Íslandsmóti í holukeppni

Í landsmóti í holukeppni skal reikna punkta í uppstillingarhringjum út frá stablefordpunktakerfi án forgjafar en leikmenn sem ná neðangreindum árangri fáeinnig punkta sem hér segir. (Ath. að leikmaður sem kemst t.d. í 4manna úrslit fær ekki að auki punkta fyrir að komast í 8 manna úrslit)

  • 8 manna úrslit: 10 pt.
  • 4 manna úrslit (4. sæti): 30 pt.
  • 4 manna úrslit (3. sæti): 40 pt.
  • 2 manna úrslit (2. sæti): 50 pt.
  • 2 manna útslit (1. sæti): 60 pt.

Útreikningur punkta á Meistararmóti GA, opnu móti á Norðurlandi og KBBankamótaröð (Íslandsmót í höggleik meðtalið)

Reiknað er út frástableford punktakerfi án forgjafar. Að auki eru gefnir punktar fyrir:

  • 1. sæti:60 pt.
  • 2. sæti: 50 pt.
  • 3. sæti 40 pt.
  • 4. sæti. 30 pt.
  • 5 sæti. 25 pt.
  • 6 sæti 20 pt.
  • 7 sæti 15 pt.
  • 8 sæti 10 pt.

Aukapunkta skal leggja við reiknaðann heildarpunktafjölda úr viðmiðunarmótum áður en deilt er í með fjölda leikinna hringja. (höggleiks) í viðkomandi mótum.

Verði tveir leikmenn jafnir er valið alfarið í höndum liðstjóra.

Vallarvísir

Mynd augnabliksins

img_1230.jpg

Könnun

Hvernig líkar ykkur tillögur að nýju deiliskipulagi að Jaðri








Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Speki

Árið 1875 var opinberlega staðfest að fullkominn golfvöllur skildi vera 18 holur.

 

Tillaga að Deiliskipulagi golfvallarsvæðis að Jaðri

Tillaga að deiliskipulagi 2010

Smelltu á myndina til að ná í PDF skjal með tillögu að nýja deiliskipulaginu

Vallarframkvæmdir

 

 video

Umgengni og leikhraði

  • Gerið við boltaför á flötum/kylfuför á brautum

  • Halda skal uppi góðum leikhraða - 4 í holli/4.40 klst hámark

  • Snyrtilegur klæðnaður - ekki gallafatnaður

 

Arctic Open

Arctic open logo

Arctic Open 2011

Haldið dagana 23. - 25. júní

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning