Almenn atriði
Við val á keppnissveitum GA skal ganga út frá eftirfarandi:
- Árangur í fyrirframákveðnum mótum skal ráða vali í helming sæta.
- Val í önnur sæti er í höndum liðsstjóra, þar sem liðstjóri getur t.d. tekið mið af árangri í keppnum, framförum yfir tímabilið og ástundun við æfingar. Ekki skal taka tillit til árangurs í æfingahringjum eða hringjum sem spilaðir eru til forgjafar utan reglubundinna móta.
Almenn skilyrði
Aðeins þeir einstaklingar sem uppfylla neðangreind skilyrði koma til grein í keppnissveit GA
- Fullgildir meðlimir í GA (árgjald greitt að fullu og að öðru leyti skuldlausir við GA)
- Meðlimir í afrekshópi GA og hafa skilað til afreksnefndar útfylltu eyðublaði með markmiðasetningu sinni fyrir 15. maí ár hvert.
Mót til viðmiðunar við val á keppnissveitum GA
- Meistaramót GA
- Íslandsmót í höggleik
- Íslenska mótaröðin
- Norðurlandsmótaröðin
- Sérstök viðmiðunarmót








