Hvað er nýtt

Fréttir og tilkynningar

26.06.2023

Úrslit 2023

Úrslit úr Arctic Open 2023
06.07.2022

Úrslit 2022

Úrslit úr Arctic Open 2022
12.10.2021

Úrslit 2021

Úrslit úr Arctic Open 2021
24.11.2020

Úrslit 2020

Úrslit úr Arctic Open 2020

UM ARCTIC OPEN

Mótið er haldið dagana 20-22 júní 2024. Við viljum vekja athygli kylfinga á því að opnunarhátíðin er haldin á fimmtudegi fyrir fyrstu rástíma og því er engin dagskrá á miðvikudegi.

Það er sem draumur hafi ræst, segja kylfingar sem tekið hafa þátt í Arctic Open golfmótinu á Akureyri. Enda er það draumi líkast og einstök upplifun að spila golf í blóðrauðu sólarlagi um miðnæturbil svo nærri heimskautsbaugi. Stemningin í kringum mótið er engu lík og þátttakendur eiga ógleymanlegar stundir í góðra vina hópi.

Arctic Open er alþjóðlegt golfmót sem hefur fest sig í sessi síðan það var fyrst haldið árið 1986 en það ár var einungis keppt í einum flokki, þ.e.a.s. með forgjöf.

Kylfingar sem hafa notið miðnætursólar á Arctic Open í gegnum tíðina hafa komið víðsvegar af landinu og frá öllum heimshornum. Þeir ljúka allir sem einn lofsorði á skipulag mótsins sem er í raun fjögurra daga golfhátíð, 36 holu golf þar sem leikið er eftir Stableford punktakerfi. Sjálfir keppnisdagarnir eru tveir og spilaðar 18 holur hvorn þeirra.

Nánari upplýsingar