Arctic Open 2012 - Úrslit

Í vikunni fór fram Arctic Open, og er það í 26 sinn sem mótið er haldið.

Á fimmtudeginum klukkan eitt var vegleg opnunarhátíð og mótið sett. Þar var boðið upp á mat og drykk fyrir þátttakendur, en að því loknu var haldin drive-keppni á hvíta teignum á 8. braut. Í þeirri keppni fór sleggjan Elfar Halldórsson með sigur af hólmi, þrátt fyrir meiðsli á ökkla.

Mótið hófst svo klukkan 4 á fimmtudeginum, og var ræst út með sama hætti og undanfarið ár, þ.e. ræst út á öllum teigum samtímis, en skotið var upp flugeld sem merki um það hvenær mætti slá upphafshöggin. Seinni ræsingin var síðan klukkan 21:30, en á föstudeginum fóru þeir seint út sem voru snemma á fimmtudeginum og öfugt.

Fínasta veður var í mótinu, þó svo miðnætursólin hafi lítið látið sjá sig. Kylfingar létu það hins vegar ekkert á sig fá, því þeir höfðu meðferðis survival kit í boði Karls K. Karlssonar. Jafnframt fengu þátttakendur veglega teiggjöf frá Sun Mountain, þ.e. undirpeysu og vesti.

Úrslit mótsins voru eftirfarandi:

Höggleikur

Besta skor í 55+ Skúli Ágústsson 161 högg (bráðabani)

Besta skor Guðlaug M. Óskarsdóttir 179 högg

 

1.sæti án fogjafar Heiðar D. Bragason 142 högg

2.sæti án forgjafar Ólafur A. Gylfason 146 högg

3.sæti án forgjafar Fylkir Þ. Guðmundsson 149 högg (bráðabani)

 

Punktakeppni

1.sæti með forgjöf Karl Jónsson 75 punktar (talið til baka)

2.sæti með forgjöf Hjörtur Sigurðsson 75 punktar (talið til baka)

3.sæti með forgjöf Heimir Ö. Árnason 75 punktar (talið til baka)

 

Liðakeppni

Sigurvegarar Heimir Ö. Árnason 213 punktar(3 bestu skorin telja báða dagana)

Hallur Guðmundsson

Skúli Ágústsson

Hafliði Svavarsson

 

Lengsta teighögg og næst holu

Lengsta teighögg á 15. Braut 28/6 Jóhann H. Jónsson

Lengsta teighögg á 15. Braut 29/6 Örvar Samúelsson

Næst holu á 4. braut 28/6 Árni P. Jóhannsson 82 cm

Næst holu á 4. braut 29/6 Þorvaldur Þorsteinsson 82 cm

Næst holu á 6. braut 28/6 Allan Peng 35 cm

Næst holu á 6. braut 29/6 Marólína Erlendsdóttir 2,94 m

Næst holu á 11. braut 28/6 Björn Steinbekk 1,09 m

Næst holu á 11. braut 29/6 Garðar Bjarnason 1,38 m

Næst holu á 14. braut 28/6 Sigmundur Ófeigsson 83 cm

Næst holu á 14. braut 29/6 Andri Már Jónsson 1,02 m

Næst holu á 18. braut 28/6 Björgvin Björgvinsson 1,34 m

Næst holu á 18. braut 29/6 Ólafur Gylfason 13,5 cm

 

Nokkrir heppnir kylfingar voru að lokum dregnir út í happdrætti.

Vinningar mótsins voru í boði Hole in one, NTC, Rolf Johansen, Kúltúr, Vífilfell, Flugfélag Íslands, Golfbúðinni í Hafnarfirði og Cintamani.